Sport

Björgvin hafnaði í 42. sæti

Björgvin Björgvinsson skíðamaður frá Dalvík varð í 42 sæti í svigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Adelboden í morgun, 2,99 sekúndum á eftir Austurríkismanninum Manfred Pranger sem náði bestum tíma í fyrri ferðinni.

28 skíðamenn luku ekki fyrri ferðinni og 5 þeirra sem komust í mark náðu lakari tíma en Björgvin. Björgvin var með rásnúmer 71 og brautin því erfið þegar hann renndi sér niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×