Viðskipti erlent

Landsbókasafn Bretlands varðveitir vefinn indefence.is

Landsbókasafn Bretlands - British Library - hefur ákveðið að varðveita vef indefence.is sem heimild um fjármálakreppuna fyrir fræðimenn framtíðar.

Í tilkynningu frá British Library segir að fjármálakreppan hafi svo víðtækar afleiðingar um allan heim að safninu finnist þvi beri skylda til að halda til haga upplýsingum af hinum nýju vefmiðlum vegna hennar.

Safn British Library um fjármálakreppuna mun taka til um eitt hundrað vefja, og er vefur indefence.is einn þeirra.

Safnið er hluti af Breska vefsafninu sem stofnað var árið 2004 í þeim tilgangi að varðveita vefheimildir um ókomna tíð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×