Lífið

Kaffihús Dóru slær í gegn hjá Dönum

vel tekið Dóra Takefusa er ánægð með móttökurnar sem nýopnað kaffihús hennar í Kaupmannahöfn hefur fengið.
vel tekið Dóra Takefusa er ánægð með móttökurnar sem nýopnað kaffihús hennar í Kaupmannahöfn hefur fengið.

„Hér er búið að vera brjálað að gera síðan við opnuðum," segir Dóra Takefusa en hún er nýbúin að opna kaffihúsið Lyst í Norrebro hverfinu í Kaupmannhöfn. Dóra segir viðtökurnar hafa farið fram úr sínum björtustu vonum og hún bjóst alls ekki við þessu.

„Við ætluðum að opna í rólegheitum fyrir tveim vikum síðan og kannski senda sms á vini og kunningja og segja þeim að kíkja við. Svo bara fylltist staðurinn um leið og hefur varla tæmst síðan," segir Dóra.

„Sitt hvoru megin við okkur eru tvær stórar danskar kaffihúsakeðjur svo ég var var alveg búin að að búa mig undir að þetta myndi taka smá tíma en við byrjuðum bara strax að ræna kúnnunum þeirra," segir Dóra hlæjandi en kaffihúsið býður upp á léttar veitingar og svo er íslenskt kaffi á boðstólum.

Það má því segja að kaffihúsið sé hálfgert Íslendingakaffihús því allir starfsmenn þess koma frá Íslandi. „Við erum með kaffi frá Te&Kaffi en ég ætla líka að selja baunapoka frá fyrirtækinu hér á kaffihúsinu," segir Dóra og bætir við að íslenska kaffið hafi lagst vel í viðskiptavinina.

Dóra segir hverfið sem kaffihúsið er í rólegt og að margir viðskiptavinir komi á leið sinni í vinnuna. „Hverfið er mjög kaffihúsavænt og hér býr fólk sem hefur gaman af því að hanga á kaffihúsum," segir Dóra og viðurkennir að kaffihúsabransinn sé frábrugðinn barrekstri en hún hefur rekið barinn Jolene á Vesterbro síðan árið 2007.

„Það er mikil vinna að vera með eldhús, þó að við bjóðum bara upp á létta kaffihúsarétti. En þetta er æðislega gaman og náttúrulega bara frábært að okkur sé tekið svona vel." -áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×