Lífið

Tarantino grillaður

quentin tarantino Leikstjórinn var „grillaður“ af vinum sínum er hann var vígður inn í Friar´s-klúbbinn.
quentin tarantino Leikstjórinn var „grillaður“ af vinum sínum er hann var vígður inn í Friar´s-klúbbinn.

Bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino var vígður inn í hinn þekkta Friar"s-klúbb fyrir skömmu.

Þar var hann „grillaður" af vinum sínum, þar á meðal leikstjóranum Eli Roth, sem gerði ítrekað grín að leikstjóranum við mikil hlátrasköll viðstaddra.

Roth hæddist að líkamsburðum Tarantinos og vildi einnig meina að hann væri með fótablæti á alvarlegu stigi.

Grínistinn Jeff Ross minntist á hátt enni leikstjórans og vildi meina að hægt væri að sýna þar næstu kvikmynd hans.

Á meðal gesta þetta kvöld voru leikkonurnar Uma Thurman og Sarah Silverman, Brett Ratner og „grill" meistarinn Samuel L. Jackson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×