Lífið

Borðaði aðeins pasta og pitsur

Ekki meira pasta Natalie Portman þurfti að passa upp á mataræðið meðan á tökum á The Black Swan stóð. 
nordicphotos/getty
Ekki meira pasta Natalie Portman þurfti að passa upp á mataræðið meðan á tökum á The Black Swan stóð. nordicphotos/getty

Natalie Portman þurfti að fylgja ströngu mataræði meðan á tökum kvikmyndarinnar The Black Swan stóð. Leikkonan hætti þó í megrun um leið og tökum lauk.

„Ég þurfti að borða pasta, brauð og pitsur alla daga. Ég þurfti alls ekki að hætta að borða, heldur minnka skammtana og borða oftar," sagði Portman í viðtali við People Magazine. Auk þess að þurfa að passa upp á það sem hún setti ofan í sig varð Portman að stunda einhvers konar líkamsrækt í minnst fimm klukkustundir á dag. „Dansarar eru stanslaust að þjálfa sig. Mér fannst þetta mjög erfið vinna en þetta var einnig stórkostleg lífsreynsla."

Portmann æfði ballett með danshöfundinum Benjamin Milliped sem er nú kærasti hennar.

„Hann veit hvenær hann á að gefa eftir. Stundum gat ég ekki gert ákveðna hluti, sama hversu mikið ég reyndi, þá breytti hann sporunum þannig að ég gat gert það betur. Ég held að það hafi aðeins gert myndinni gott," sagði leikkonan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×