Lífið

Ástþór áfram í erlendri lagakeppni

ástþór óðinn Lag hans, Mamma,  er komið í 35-manna úrslit nýrrar evrópskrar lagakeppni.fréttablaðið/anton
ástþór óðinn Lag hans, Mamma, er komið í 35-manna úrslit nýrrar evrópskrar lagakeppni.fréttablaðið/anton

„Þetta kom mér rosalega á óvart,“ segir rapparinn Ástþór Óðinn.

Lag hans, Mamma, sem hann syngur með Möggu Eddu er komið í 35 manna úrslit í erlendri lagakeppni á vegum I-Mego.

Um nýja evrópska keppni er að ræða þar sem hæfileikaríkir tónlistarmenn sem eru ekki með plötusamning fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Mörg hundruð lög voru send í keppnina og lag Ástþórs, sem er bæði sungið á íslensku og ensku, var valið úr þeim hópi.

„Þetta lag fjallar um mömmu mína sem lést fyrir fimmtán árum síðan. Ég er að skrifa henni bréf um hvernig staðan er í dag og hvernig hlutirnir hafa þróast,“ segir Ástþór.

Lagið er á plötu hans, Both Ways, sem kom út fyrir síðustu jól. Hann frétti fyrst af keppninni þegar hann stundaði nám í upptökustjórn í London og sendi lagið svo inn fyrir mánuði.

Bandaríska útgáfufyrirtækið Expat Records heyrði lagið fyrir skömmu og hefur sýnt áhuga á að gefa plötuna Both Ways út.

„Þetta er á byrjunarstigi en þetta er komið í ferli hjá þeim,“ segir Ástþór og viðurkennir að innsti draumur sinn muni rætast ef samningurinn verður að veruleika.

Hægt er að kjósa lag Ástþórs á síðunni Facebook.com/imegoinfinity. Tilkynnt verður um ellefu efstu keppendurna 29. október og sigurvegarinn verður tilkynntur 2. nóvember. Hann fær einn dag í hljóðveri í verðlaun og hinir tíu fá smærri verðlaun. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×