Lífið

Hafna kvikmyndum og þáttum

Kings of leon Hafnar ítrekað boði um að tónlist þeirra sé spiluð í þáttum og sýnishornum fyrir kvikmyndir.
Kings of leon Hafnar ítrekað boði um að tónlist þeirra sé spiluð í þáttum og sýnishornum fyrir kvikmyndir.

Caleb Folowill, söngvari hljómsveitarinnar Kings Of Leon, sagði frá því nýlega að meðlimir hljómsveitarinnar hefðu hafnað fjölda tækifæra til að fá tónlist hljómsveitarinnar í þætti á borð við Glee, Ugly Betty og í sýnishorn fyrir ýmsar kvikmyndir.

„Fólk hefur hringt í okkur til að athuga hvort við myndum leyfa þeim að nota Use Somebody í sýnishornum fyrir kvikmyndir sínar og við höfum neitað þeim öllum. Daginn eftir hringja þeir aftur og gefa okkur samband við stjörnu myndarinnar – ég nefni engin nöfn, en hann er mjög frægur leikari – til að láta hann reyna að sannfæra okkur um að samþykkja þetta. Ég bað hann bara um að vera ekki að eyða tímanum í þetta,“ var haft eftir söngvaranum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×