Lífið

Jón Gnarr vill styttu af Báru bleiku

Bára bleika Sigurjónsdóttir verslunarkona.
Bára bleika Sigurjónsdóttir verslunarkona.
Jón Gnarr ritaði pistil í Fréttablaðið í gær þar sem hann útskýrir framboð sitt fyrir Besta flokkinn betur í kjölfar góðrar útkomu úr skoðanakönnunum.

Jón stingur upp á ýmsu í grein sinni. Hann vill taka Hljómskálagarðinn í gegn og tengja Húsdýragarðinn skólastarfi. Einnig minni og rafknúna strætisvagna og fleiri styttur af konum, þeirra á meðal Báru bleiku. Jón vill einnig styttur af kynlegum kvistum á borð við Óla blaðasala.

Jón er orðinn leiður á stjórnmálamönnum í borginni og segist vilja stríða þeim með því að draga upp afskræmda spegilmynd af þeim. Hann segir Reykjavík orðna leiðinlega og ljóta og finnst það stjórnmálamönnunum að kenna.


Tengdar fréttir

Kæri Reykvíkingur

Ég stofnaði Besta flokkinn vegna þess að ég var orðinn leiður á hegðun og framkomu stjórnmálamanna í borginni og langaði að gera athugasemd sem mark væri tekið á. Mig langaði að stríða þessu fólki, með því að draga upp afskræmda spegilmynd af því sjálfu. Ég var fyrir löngu orðinn þreyttur á að horfa uppá borgina mína drabbast niður af vanrækslu og skipulagsleysi. Ég var orðinn þreyttur á innantómum vaðli stjórnmálamanna, loforðum þeirra, valdabaráttu, yfirborðsmennsku og hroka. Þess vegna byrjaði ég á þessu og fékk til liðs við mig fólk sem ég þekki og treysti og vissi að var sammála mér. Viðbrögð kjósenda hafa svo sýnt okkur að við erum ekki ein um þessa skoðun. Fólk er bara búið að fá nóg. Sá mikli stuðningur sem framboðið hefur fengið kom mér töluvert á óvart og mér finnst það því skilda mín að útskýra mál mitt betur fyrir fólki og lýsa því yfir að ef það er vilji kjósenda þá erum við til í að gera okkar besta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×