Lífið

The Dark Knight Rises sú síðasta

Sú Síðasta The Dark Knight Rises verður síðasta Batman-myndin sem Chris Nolan leikstýrir um höfuðóvin glæpamanna í Gotham-borg.
Sú Síðasta The Dark Knight Rises verður síðasta Batman-myndin sem Chris Nolan leikstýrir um höfuðóvin glæpamanna í Gotham-borg.

Christian Bale lýsti því yfir fyrir nokkru að hann hygðist leggja skikkju Batman á hilluna eftir næstu mynd.

Og nú hefur leikstjóri myndanna tekið af öll tvímæli; The Dark Knight Rises verður sú síðasta sem hann leikstýrir.

Nolan lyfti grettistaki af Leðurblökumanninum eftir að George Clooney hafði nánast gengið af honum dauðum. Nú er ljóst að Nolan hyggst gera sívinsælan þríleik og leikstjórinn hlakkar mikið til ef marka má viðtal við hann í Entertainment Weekly.

„Ég er mjög ánægður með að gera aðra Batman-mynd, það hefði verið erfitt að setjast niður og skrifa eitthvað nýtt eftir Inception,“ útskýrir Nolan, en Inception er spáð mikilli velgengni á komandi Óskarsverðlaunahátíð.

„Það verður mjög gott að skrifa eftir fyrirfram ákveðnum reglum og umhverfi Batman-heimsins.“

Nolan viðurkennir einnig að hann sé ákaflega ánægður með að vera að ljúka við síðasta kaflann í sögunni um auðjöfurinn Bruce Wayne, sem berst gegn þrjótum Gotham-borgar í líki Leðurblökumannsins.

„Við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af því hvað kvikmyndaverinu finnst, við getum bara gert þennan lokakafla nákvæmlega eins og við viljum.“

Nolan útilokaði ekki að notfæra sér ónotaðar upptökur með Heath Ledger í hlutverki Jókersins en slíkt yrði ekki gert án samþykkis frá fjölskyldu leikarans.

Hann bætti einnig við að Gátumeistarinn verði ekki næsti aðalþrjótur.

„Við notfærum okkur þær persónur sem eru til fyrir og svo verða einhverjar nýjar kynntar til leiks.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×