Lífið

Safnbox með Hendrix

jimi hendrix
Safnbox með sjaldheyrðum lögum gítarsnillingsins kemur út 15. september.
jimi hendrix Safnbox með sjaldheyrðum lögum gítarsnillingsins kemur út 15. september.

Safnbox með sjaldheyrðum og óútgefnum lögum með Jimi Hendrix verður gefið út 15. nóvember í tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá dauða hans.

Boxið nefnist West Coast Seattle Boy - The Jimi Hendrix Anthology og hefur að geyma fjóra geisladiska og 90 mínútna langa heimildarmynd um gítarsnillinginn. Ný útgáfa af laginu Love Or Confusion verður gefin út sem smáskífa 27. september í tilefni safnboxins.

Alls verða í boxinu 45 óútgefnar hljóðvers- og tónleikaupptökur með Hendrix, þar á meðal sjaldheyrðar útgáfur af lögunum á þremur hljóðversplötum hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×