Lífið

300 milljónir í kassann hjá Björgvini og Frostrósum

Mögnuð eftirspurn 39 þúsund Íslendingar ætla annað hvort að fara á Frostrósir eða Jólagesti Björgvins Halldórssonar. Miðasalan nemur þrjú hundruð milljónum íslenskra króna. Frostrósahópurinn lagði af stað í tónleikaferðina í gær.Fréttablaðið/Valli
Mögnuð eftirspurn 39 þúsund Íslendingar ætla annað hvort að fara á Frostrósir eða Jólagesti Björgvins Halldórssonar. Miðasalan nemur þrjú hundruð milljónum íslenskra króna. Frostrósahópurinn lagði af stað í tónleikaferðina í gær.Fréttablaðið/Valli

Risarnir í jólatónleikahaldi, Jólagestir Björgvins Halldórssonar og Frostrósir, velta 300 milljónum íslenskra króna í miðasölu þetta árið.

Þetta er samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins á tölum frá vefsíðunni midi.is og tónleikahöldurum. Þrjátíu og níu þúsund gestir greiða að meðaltali tæpar átta þúsund krónur inn á 34 tónleika en þessi fjöldi verður að teljast algjört einsdæmi í íslenskri tónleikasögu.

Um fjórtán þúsund manns sækja tónleika Björgvins og um 25 þúsund manns ætla að sjá Frostrósir þetta árið, en tónleikaveislan hefst um helgina. Reyndar virðist áhugi á jólatónleikum vera mjög mikill um þessar mundir; það seldist upp á tvenna aðventutónleika Baggalúts fyrir norðan án þess að þeir væru auglýstir að neinu ráði og Sigríður Beinteinsdóttir verður með veglega jólatónleika í Grafarvogskirkju föstudaginn 10. desember sem bætt hefur verið við miðum á vegna mikillar eftirspurnar.

Þá má ekki gleyma árlegum Þorláksmessutónleikum Bubba Morthens í Háskólabíói. Og þannig mætti áfram telja.

Ísleifur B. Þórhallsson, sem skipuleggur Jólagesti Björgvins, bendir á að þessum tölum verði að taka með fyrirvara. Sumir miðar hafi verið seldir til fyrirtækja með afslætti og þá séu alltaf einhver sæti stök í salnum sökum þess miðakerfis sem stuðst sé við.

„En jú, það er rétt, þetta eru ansi margir gestir. Rúmlega tíu prósent af þjóðinni fara á aðra hvora tónleikana.“ Hann segir það jafnframt merkilegt að tónleikaraðirnar tvær virðist aldrei hirða gesti hvor af annarri.

„Bilið breikkaði aðeins í fyrra en núna selst upp á ferna jólatónleika hjá okkur og Frostrósum. Okkur finnst stundum eins og tónleikarnir styðji hverjir aðra þótt þeir séu í bullandi samkeppni, það myndast bara einhver stemning. Við höfum heyrt það hjá midi.is að öll önnur miðasala leggist af í smástund þegar opnað sé fyrir sölu á þessa jólatónleika.“

Fréttablaðið tók saman svipaðar tölur góðærisárið mikla árið 2007 og náði miðasalan þá ekki helmingi sölunnar í ár, nam þá 120 milljónum króna.

Ísleifur segir það ekkert skrýtið. „Þetta helst í hendur við kreppuna, fólk er ekki að kaupa dýrari bíl, íbúð eða fara til útlanda, það leyfir sér í staðinn að fara á jólatónleika.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×