Lífið

Óvænt upprisa leikarans Gíós

Leikur loksins Guðjón Pedersen leikur lækninn Erling í kvikmyndinni Djúpinu eftir Baltasar Kormák. Leikhússtjórinn fyrrverandi heldur enn að Baltasar sé að stríða sér með hlutverkinu þótt það verði erfitt að klippa það út.
Leikur loksins Guðjón Pedersen leikur lækninn Erling í kvikmyndinni Djúpinu eftir Baltasar Kormák. Leikhússtjórinn fyrrverandi heldur enn að Baltasar sé að stríða sér með hlutverkinu þótt það verði erfitt að klippa það út.

„Ég myndi auðvitað segja að þetta væri aðalhlutverkið. Sem það er náttúrulega ekki. En ég fæ að segja nokkrar setningar og Baltasar sýndi mér mikla þolinmæði á tökustað," segir Guðjón Pedersen, fyrrverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins.

Hann leikur lækninn Erling í kvikmyndinni Djúpinu eftir Baltasar Kormák, þar sem mögnuð saga Guðlaugs Friðþórssonar er höfð til hliðsjónar.

Guðjón, eða Gíó eins og hann er jafnan kallaður, hefur lítið látið til sín taka á leiklistarsviðinu og raunar eiga elstu menn erfitt með að muna eftir honum í hlutverki leikarans. Einhverja kann þó að ráma í að Guðjón lék þögla þjófinn sem stal Áramótaskaupinu árið 1985. Og Guðjón staðfestir það.

„Þær eru ekki margar myndirnar sem ég hef leikið í, það er alveg rétt. Við gerðum samt einu sinni mynd, leikhópur sem hét Svart og sykurlaust, og tókum hana upp á Ítalíu."

Guðjón segist í raun ekki vita hversu stórt hlutverkið verði í myndinni. Og viðurkennir að hann hafi haldið að Baltasar væri að stríða sér þegar hann hringdi og bað hann um að taka hlutverkið að sér.

„Og ég held reyndar enn að hann sé að stríða mér. Við Baltasar höfum þekkst í mörg ár," segir Guðjón, sem efast um að hann verði klipptur út úr myndinni því læknirinn Erlingur er sá sem skoðar aðalleikarann Ólaf Darra þegar hann kemur í land eftir sundið til Eyja.

Guðjón segist ánægður með að þessi mynd skuli vera gerð því ungt fólk sé ekki meðvitað um þessa sögu.

„Og það verður að halda henni til haga."

- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×