Lífið

Draumur að vinna heima

no doubt Gwen Stefani elur upp tvo syni sína á sama tíma og hún byggir upp feril sinn sem fatahönnuður.
no doubt Gwen Stefani elur upp tvo syni sína á sama tíma og hún byggir upp feril sinn sem fatahönnuður.

Söngkonan úr hljómsveitinni No Doubt, Gwen Stefani, segir það erfitt að ala upp tvo syni sína á sama tíma og hún byggir upp feril sinn sem fatahönnuður. Fatalínan hennar kallast L.A.M.B. og hefur hún vakið mikla athygli.

„Það er mjög erfitt en ég vinn mikið heima hjá mér. Þess vegna byrjaði ég með fatalínuna. Ég vissi að mig langaði að eignast fjölskyldu. Mig langaði líka að geta unnið heima hjá mér við eitthvað skapandi og þannig gæti ég haft börnin mín hjá mér," sagði hún.

„Þetta er algjör draumur fyrir mig. Þetta er ekki auðvelt en ég elska þetta fyrirkomulag."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×