Lífið

Eltingarleikurinn að nóttu til skemmtilegastur

victoria Björk Farrell Þessi 12 ára stúlka eyddi sumrinu í upptökum fyrir nýja fjölskyldumynd sem frumsýnd verður í vetur. fréttablaðið/gva
victoria Björk Farrell Þessi 12 ára stúlka eyddi sumrinu í upptökum fyrir nýja fjölskyldumynd sem frumsýnd verður í vetur. fréttablaðið/gva

Victoria Ferell leikur aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd. Hinn tólf ára gamli nemandi í Melaskóla segist ganga með leikkonudrauminn í maganum.

„Ég bjóst alls ekki við þessu en ég var rosalega glöð yfir því að fá hlutverkið. Nú bíð ég bara spennt eftir því að sjá myndina tilbúna,“ segir Victoria Ferrell, sem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra sem frumsýnd verður í byrjun næsta árs.

Victoria eyddi sumrinu á ögn öðruvísi hátt en aðrir jafnaldrar hennar því tökur hófust nánast um leið og sumarfríið hófst. Victoria leikur unga stúlku sem misir bæði föður sinn og bróður í bílslysi. Hún kemst að því að faðir hennar hafi tekið þátt í áhugamannaleikfélagi og í kjölfarið dregst hún inní baráttu þeirra við bæjaryfirvöld og fjölmörg önnur ævintýri.

„Ég tók þátt í áheyrnarprufum þar sem voru um 200 stelpur. Ég komst fyrst í átta manna úrslit og þurfti þá að læra tvo einleiki, annan á íslensku og hinn á ensku. Og síðan var ég bara valin,“ segir Victoria, sem hefur ekki leikið mikið áður fyrir utan statistahlutverk í myndinni Kjötborg ásamt því að hafa verið síðasta ár á námskeiðinu Sönglist í Borgarleikhúsinu.

Victoria segir að skemmtilegasta atriðið hafi verið eltingaleikur sem tekinn var upp að næturlagi. „Allir leikararnir sem tóku þátt voru saman að spjalla á milli upptaka og það var líka mjög gaman þegar ég þurfti að leika á stultum,“ segir hún. Samkvæmt Victoriu sjálfri er myndin fyrst og fremst fjölskyldumynd. „Þetta er ekki dramamynd en samt með smá dimmum köflum út af missi stelpunnar. En hún er annars mjög fyndin og skemmtileg.“

Og hún vonar að þetta verði ekki það síðasta sem hún geri á leikaraferlinum.„Ég skelli mér örugglega í einhverjar prufur ef þær koma upp. Mig langar rosalega mikið að verða leikkona í framtíðinni.“

linda@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×