Lífið

Ný hljómsveit Liam spilar Bítlalög

Nýja hljómsveitin hans spilar lögin í nýrri Bítlamynd sem er í undirbúningi.
Nýja hljómsveitin hans spilar lögin í nýrri Bítlamynd sem er í undirbúningi.

 

Liam Gallagher segir að nýja hljómsveitin hans muni sjá um alla tónlistina í nýju Bítlamyndinni sem hann er með í undirbúningi.

Myndin verður byggð á bókinni The Longest Cocktail Party frá árinu 1972 sem fjallar um síðustu daga Bítlanna.

Bókin kom fyrst út árið 1972.

Gallagher hefði getað notað upphaflegu Bítlalögin í myndinni en vill frekar taka þau sjálfur upp á nýjan leik.

„Mér finnst meira spennandi að bjóða upp á hljóm sem minnir þig á þetta tímabil í staðinn fyrir að hafa bara þessi lög eins og Let It Be," sagði Gallagher og bætti við að þetta yrði eina kvikmyndin hans.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×