Sverre tekur á móti Haukum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. nóvember 2010 06:30 Sverre tekur hér á Christian Zeitz, leikmanni Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Fyrri leikur Íslandsmeistara Hauka og þýska liðsins Grosswallstadt fer fram ytra í dag. Með Grosswallstadt leikur landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson en hann hlakkar til að mæta löndum sínum. „Það er alltaf stórfurðulegt að mæta íslenskum liðum. Ég er reyndar öllu vanur frá tíma mínum með Gummersbach. Þá mættum við bæði Fram og Val,“ sagði Sverre við Fréttablaðið í gær en hann segir þýska liðið ekki ætla að falla í þá gryfju að vanmeta Haukana. „Það er aukapressa á mér þar sem við erum að mæta íslensku liði og ég verð brjálaður ef einhver okkar ætlar að leyfa sér að slaka á. Ég mun ekki fyrirgefa þeim það ef við komumst ekki áfram. Þetta verður örugglega ekki auðvelt en við eigum samt að vinna. Við erum nú atvinnumannalið.“ Það vakti athygli að Grosswallstadt skyldi klúðra auglýsingamálum fyrir leikinn. Þeir auglýstu andstæðinginn sem HK en ekki Hauka. „Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta þegar ég sá þetta. Ég rauk inn á skrifstofu og sagði mönnum frá mistökunum,“ sagði Sverre en var auglýsingunni breytt? „Nei, reyndar ekki. Það var búið að prenta svo mikið og hengja upp út um allan bæ að það var ekki hægt. Fólk heldur því að HK sé að koma,“ sagði Sverre hlæjandi en hann lék einmitt með HK áður en hann fór til Grosswallstadt.
Handbolti Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Enski boltinn Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti