Lífið

Neistarnir flugu við tökur Wall Street

Shia LaBeouf og Carey Mulligan eru saman að kynna Wall Street í Cannes.
Shia LaBeouf og Carey Mulligan eru saman að kynna Wall Street í Cannes.

Leikstjórinn Oliver Stone segir það sér að þakka að leikkonan Carey Mulligan og leikarinn Shia LaBeouf hafi byrjað saman, en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni Wall Street: Money Never Sleeps.

„Maður sá neistann á milli þeirra strax. Þau voru mjög fagmannleg á tökustað, en það var ekki um að villast að þau voru afskaplega hrifin af hvort öðru. Ég var mjög ánægður þegar ég áttaði mig á því að þau voru orðin par, það gerði ástarsenurnar á milli þeirra aðeins enn betri. Það var augljóst að þau þurftu ekki að kafa djúpt til að finna neistann," sagði leikstjórinn um hið unga par.

Hér er sýnishorn úr nýju Wall Street þar sem samband þeirra kemur vel fram. Hún leikur dóttur Gordons Gekko og hann er nýjasta strengjabrúða gamla silfurrefsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×