Lífið

Hrafninn hefur menninguna til flugs

Nýr menningarviti Ingvi Hrafn hefur fengið Sigurð G. Tómasson til að stjórna bókmenntaþætti á ÍNN sem hefur göngu sína á sunnudaginn.
Nýr menningarviti Ingvi Hrafn hefur fengið Sigurð G. Tómasson til að stjórna bókmenntaþætti á ÍNN sem hefur göngu sína á sunnudaginn.

„Kiljan er elítu-þáttur þar sem er djúpt tekið á málunum og bækurnar gagnrýndar. Þátturinn okkar heitir Segðu mér frá bókinni þinni. Hver rithöfundur hefur sex mínútur til að segja frá verkinu sínu og kynna sig,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN.

Menningin sem umlykur yfirleitt aðdraganda jólanna verður hafin til vegs og virðingar á sjónvarpsstöðinni í nýjum bókmenntaþætti á sunnudögum sem verður stjórnað af fjölmiðlamanninum góðkunna, Sigurði G. Tómassyni.

Sigurður kveðst ætla að lesa bækur rithöfundanna áður en hann tekur viðtöl við þá.

„Mér finnst það vanvirða við þá að gera það ekki,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið.

Ingvi, sem var sjálfur nýkominn heim frá Ameríku þegar Fréttablaðið náði tali af honum, sagði augljóslega mikla eftirspurn eftir svona þætti miðað við þau viðbrögð sem þeir hefðu fengið.

„Við sendum út boð til áttatíu höfunda og ef allir vilja mæta þá verðum bara að fjölga þáttunum en þetta er bara okkar leið til að koma til móts við okkar áhorfendur,“ segir Ingvi. Hann segir þættina ekki vera kostaða af bókaforlögunum en þau hafi hins vegar sýnt þessu mikinn áhuga.

Þetta verður hins vegar ekki eina menningartengda efnið sem er að hefjast á dagskrá ÍNN. Því nýr tónlistarþáttur lítur dagsins ljós á fimmtudagskvöldum klukkan hálf tíu. Þar munu íslenskir tónlistarmenn og lagahöfundar fá tækifæri til að kynna sig og sína tónlist.

„Þátturinn heitir Rokk og tja, tja, tja. En ég man ekki hvað þáttastjórnandinn heitir, ég hef ekki einu sinni hitt hann enn þá.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×