Lífið

Mel Gibson í Timburmönnum tvö

Bjargar sér Mel Gibson vonar að Timburmenn tvö bjargi sér og ferli sínum og kannski engin vanþörf á.
Bjargar sér Mel Gibson vonar að Timburmenn tvö bjargi sér og ferli sínum og kannski engin vanþörf á.

Mel Gibson hyggst koma lífi sínu og ferli á réttan kjöl og telur besta ráðið til þess að leika lítið gestahlutverk í kvikmyndinni The Hangover 2. Samkvæmt vefsíðunni Pagesix.com hefur verið gengið frá samningum við Hollywood-stjörnuna og mun Gibson leika húðflúrlistamann í Bangkok.

Tökur fara fram í myndveri Warner Bros, þar sem nákvæm eftirmynd af Bangkok hefur verið byggð, en myndin segir frá því þegar gengið úr fyrri myndinni heldur í stórhættulega ferð til Taílands. Þeir Bradley Cooper, Ed Helms, Zack Galifianakis og Justin Bartha verða á sínum stað, auk þess sem Ken Jeong mun endurtaka hlutverk sitt sem hinn hættulegi glæpaforingi Mr. Chow.

Gibson er sagður vonast til þess að hlutverkið muni endurreisa ímynd hans, svipað og fyrri myndin gerði fyrir Mike Tyson. Ferill Mel Gibson hefur verið í mikilli lægð undanfarin ár; fyrst var hann handtekinn fyrir ölvunarakstur og blótaði gyðingum í sand og ösku.

Og var ákaflega drukkinn eftir að hafa verið edrú í dágóðan tíma. Síðan skildi hann við eiginkonu sína og tók saman við rússnesku söngkonuna Oksönu Grigorievu en ekki sér fyrir endann á því hvernig því sambandi lýkur þar sem ásakanir um heimilisofbeldi og kúgun hafa flogið á milli þeirra.

Þar að auki treystir enginn sér til að dreifa kvikmyndinni The Beaver með Gibson og Jodie Foster í aðalhlutverkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×