Lífið

Kardashian hótað lífláti af Bieber-gelgjum

Myndin sem gerði allt vitlaust hjá gelgjunum.
Myndin sem gerði allt vitlaust hjá gelgjunum.
Justin Bieber er heitasti gelgjusöngvari Norður-Ameríku þessi misserin og nýtur gríðarlegrar hylli. Því fylgir vitanlega harður aðdáendakjarni sem er reiðubúinn að ganga ansi langt.

Þetta fékk raunveruleikaþáttastjarnan Kim Kardashian að reyna á eigin skinni nú um helgina. Þau voru bæði boðin í góðgerðarveislu í Hvíta húsinu ásamt fjölda annarra stjarna. Þar var tekin mynd af þeim saman sem Bieber setti seinna á Netið og sagði hana vera kærustuna sína. Kardashian tók vel í þetta og sagði hann nýju ástina í sínu lífi.

Grínið gekk aðeins lengra en þau grunaði því í kjölfarið hrúguðust líflátshótanir yfir Kardashian frá aðdáendum Bieber. Stjörnurnar taka þessu létt en hætt er við því að aðrar stelpur hugsi sig tvisvar um áður en þær reyna við Bieber litla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×