Lífið

Anita nýtur lífsins á tökustað

Njósnar um Coen-bræður Anita Briem njósnar um það hjá meðleikara sínum John Getz hvernig stórleikstjórinn David Fincher og Coen-bræður vinna. Hún segir tökudaga á Elevator vera langa en hún komi brosandi heim.
Fréttablaðið/Stefán
Njósnar um Coen-bræður Anita Briem njósnar um það hjá meðleikara sínum John Getz hvernig stórleikstjórinn David Fincher og Coen-bræður vinna. Hún segir tökudaga á Elevator vera langa en hún komi brosandi heim. Fréttablaðið/Stefán

Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu mun Anita Briem leika stórt hlutverk í bandarísku kvikmyndinni Elevator. Anita hefur í nægu að snúast því verkefnin hafa smám saman verið að hrannast upp og ekki má gleyma því að hún gekk í það heilaga fyrr í sumar. Á sömu grísku eyjunni og Mamma Mía! var tekin upp.

Fréttablaðið náði tali af Anitu þegar hún var nýkomin heim af tökustað.

„Við hófum tökur fyrir rúmri viku og ég er í skýjunum. Því að vera í kringum svona hæfileikaríkt og reynslumikið fólk eins og Shirley [Knight] og John [Getz] er svo gott fyrir sálina,“ útskýrir Anita en Shirley þessi hefur í tvígang verið tilnefnd til Óskarsverðlauna og hlotið ótal aðrar viðurkenningar á sínum ferli. John Getz hefur unnið með leikstjórum á borð við David Fincher og Coen-bræður og veit því alveg hvernig heimurinn snýst.

„Ég hef aðeins verið að heyra ofan í hann um hvernig þeir vinna,“ segir Anita.

Elevator fjallar um níu manneskjur sem lokast saman í lyftu og vita að einn þeirra er með sprengju.

„Það veltur því allt á því hvernig við leikararnir vinnum saman og hvernig samböndin og sögurnar sem við sköpum á milli okkar þróast. Við erum að vinna langa daga undir stundum erfiðum kringumstæðum en ég kem heim brosandi.“ - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×