Móðurfélag Norðuráls tapaði 1,9 milljarði á þriðja ársfjórðungi 27. október 2010 08:27
Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði tapi upp á 16,8 milljónir dollara eða um 1,9 milljörðum kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Til samanburðar varð rúmlega 40 milljóna dollara hagnaður af starfsemi félagsins á sama tímabili í fyrra. Fram kemur í uppgjörinu að megnið af tapinu stafi af framvirkum samningum um sölu á áli sem tengdir voru markaðsverðinu á málmmarkaðinum í London en félagið tapaði 12,2 milljónum dollara á þessum samningum. Logan W. Kruger forstjóri Century Aluminium gerir fyrirhugað álver félagsins við Helguvík að umtalsefni í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir Kruger að bygging þessa álvers hafi gengið mun hægar en þeir hafi viljað vegna flókinna pólitískra og efnahagslegra aðstæðna á Íslandi eins og það er orðað. Því hafi verulega verið dregið úr framkvæmdum við byggingu álversins. Kruger segir að þótt erfitt sé að spá fyrir um hvenær bygging álversins fari á fullt skrið er stjórn Century Aluminium vongóð um að það verði á fyrrihelming næsta árs.
Mest lesið „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Fleiri fréttir Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira