Lífið

Fágætar eftirprentanir finnast á lager

Dularfullur fengur Jóhann Páll með dularfullu möppurnar sem væntanlega voru pantaðar af Ragnari í Smára en í þeim eru eftirprentanir af vatnslitamyndum Ásgríms Jónssonar.
Fréttablaðið/anton
Dularfullur fengur Jóhann Páll með dularfullu möppurnar sem væntanlega voru pantaðar af Ragnari í Smára en í þeim eru eftirprentanir af vatnslitamyndum Ásgríms Jónssonar. Fréttablaðið/anton

„Væntanlega kemur þessi mappa með Ásgríms-myndunum frá gamla Helgafells-lagernum þegar Ragnar í Smára var upp á sitt besta,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Vel á þriðja tug mappa með eftirprentunum af vatnslitamyndum eftir Ásgrím Jónsson fundust nýlega á lager Forlagsins úti á Fiskislóð.

Jóhann hyggst bjóða þær til sölu gegn vægu verði, tæplega tuttugu þúsund krónur, á bókamarkaði Forlagsins en frumskógarlögmálið verður látið gilda; fyrstir koma, fyrstir fá.

Jóhann segist ekki hafa hugmynd um hvaðan þessar eftirprentanir komi. Hann bendir hins vegar á að myndirnar séu prentaðar á mjög vandaðan pappír og allt efni í kringum þær sé á ensku.

„Við höfum verið að kanna tilurð þessara mappa, af hvaða tilefni ráðist var í gerð þeirra. Við heyrðum af því að svona mappa hefði verið boðin upp hjá Gallerí Fold fyrir 25 þúsund krónur og að hún hefði verið prentuð fyrir heimssýninguna 1967 í Montreal.“

Jóhann segir að hans fólk hafi eytt lunganum úr gærdeginum í að ræða við Ásgríms-sérfræðinga landsins. Hann útilokar ekki að kannski hafi Ragnar í Smára ætlað að koma Ásgrími á framfæri við útlendinga, möppurnar hafi verið drög að hálfgerðri útrás útgefandans fyrir íslenska listamanninn.

„Auðvitað ætti maður að geyma þetta sjálfur, þetta gerir jú ekkert annað en að hækka í verði.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×