Lífið

Dvelur í Jemen í sex mánuði

Sveinn H. Guðmarsson flýgur til Jemen í næstu viku þar sem hann mun dvelja í hálft ár.
Sveinn H. Guðmarsson flýgur til Jemen í næstu viku þar sem hann mun dvelja í hálft ár.

Útvarpsmaðurinn Sveinn H. Guðmarsson flýgur til Jemens í næstu viku þar sem hann mun starfa í hálft ár sem upplýsingafulltrúi fyrir Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í gegnum íslensku friðargæsluna.

„Ég mun bæði safna upplýsingum og miðla þeim af ástandinu þarna," segir Sveinn. „Þarna er mikið flóttamannavandamál og þarna hafa verið átök undanfarin misseri. Hátt í 200 þúsund manns hafa verið á vergangi og mjög stór hluti þeirra er börn og unglingar. Þess vegna lætur Unicef til sín taka."

Spurður segir Sveinn að ástandið í Jemen sé býsna slæmt. „Ég held að þetta sé fátækasta ríki Mið-Austurlanda. Landið er enn þá að jafna sig eftir áralöng átök.

Núna eru þau á takmörkuðu svæði þar sem stjórnarherinn hefur verið að ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnum," segir hann.

„Það er síðan meira áhyggjuefni að það er Al Kaída-hópur í Jemen sem stjórnvöld eru að ráðast gegn og hafa notið aðstoðar Bandaríkjamanna. Það er klassískt að net eins og Al Kaída reyni að koma sér fyrir í löndum sem eru mjög löskuð."

Þrátt fyrir ástandið segist Sveinn ekki hafa neitt að óttast. „Ég reikna með að það verði séð ágætlega um okkur. Landið er hættulegt en hins vegar er ófriðurinn staðbundinn," segir hann og býst við að dvelja í höfuðborginni Sana"a sem er bæði friðsöm og falleg.

Sveinn hlakkar til að takast á við verkefnið en segist þó yfirgefa morgunútvarp Rásar 2 með trega þar sem hann hefur starfað frá áramótum. Reiknar hann með að snúa aftur í útvarpið að hálfu ári liðnu en þangað til mun Guðmundur Gunnarsson leysa hann af. - fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×