Lífið

Megan Fox er með sýklafælni - leikur ekki í Transformers 3

Megan Fox missti hlutverk sitt í Transformers 3 eftir að hún reifst opinberlega við leikstjórann Michael Bay. 
Nordicphotos/Getty
Megan Fox missti hlutverk sitt í Transformers 3 eftir að hún reifst opinberlega við leikstjórann Michael Bay. Nordicphotos/Getty

 

Leikkonan fagra, Megan Fox, hefur látið ýmislegt misgáfulegt flakka í viðtölum undanfarin ár og hélt því áfram í nýlegu viðtali við tímaritið Allure. Innt eftir því hvort hún hafi gaman af matseld sagðist hún heldur vilja svelta en að elda ofan í sig sjálf.

„Ég held ég svelti frekar til dauða. Ég held ég kæmist af án matar í að minnsta kosti viku." Í viðtalinu ræddi hún einnig um hversu sýklafælin hún er og segir það erfiðan sjúkdóm að lifa með.

„Ég nota ekki hnífapörin á veitingastöðum. Ég get ekki hugsað mér að munnurinn á mér snerti það sama og þúsund aðrir munnar hafa áður snert. Getur þú ímyndað þér allar bakteríurnar sem þú gætir náð þér í? Oj!"

Þær fréttir voru síðan að berast frá Bandaríkjunum að Megan mun ekki leika í Transformers 3, sem fer í tökur í sumar. Fyrri Transformers-myndirnar tvær komu henni á kortið í kvikmyndaheiminum en þar sem hún lenti í rimmu við leikstjórann Michael Bay í vetur er nærveru hennar ekki lengur óskað. Í staðinn verður ráðin ný kærasta fyrir Shia LaBeouf og eru nefndar í því samhengi Gemma Arterton og fyrirsæturnar Bar Rafaeli og Miranda Kerr.

 

 

 


Tengdar fréttir

Patrick Dempsey í Transformers 3

Patrick Dempsey, þekktastur fyrir leik sinn í Grey‘s Anatomy og rómantískum kvikmyndum, hyggst skipta aðeins um gír ef marka má orð hans í brasilískum blöðum.

Fox fær ekki að vera með

Innanbúðarmenn sem vinna að þriðju kvikmyndinni um Transformers-vélmennin segja að leikstjórinn Michael Bay ætli hugsan­lega að láta persónu Megan Fox deyja í næstu mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×