Hljóðlátt innlegg í baráttuna Ragna Sigurðardóttir skrifar 16. september 2010 07:00 Lifi frelsið eftir Rósku.
Myndlist/**** Með viljann að vopni - sýning á verkum 27 íslenskra myndlistarkvenna Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir Sýningarstjóri: Hrafnhildur Schram Listfræðingurinn og sýningarstjórinn Hrafnhildur Schram hefur verið umsvifamikil á sýningarstjórasviðinu undanfarin ár. Sýning hennar Huldukonur í Þjóðminjasafninu árið 2005 og samnefnd bók vöktu verðskuldaða athygli. Þar dró Hrafnhildur upp mynd af upphafi íslenskra kvenna í myndlist, af menntun þeirra, aðstæðum og auðvitað list þeirra. Nú er það áratugurinn 1970-80 sem er viðfangsefnið, áratugur sem markar annað upphaf kvenna í íslenskri myndlist. Á þessum tíma náði áratuga gömul kvennabarátta nýjum hæðum. Mikil vitundarvakning átti sér stað og konur einhentu sér í að endurskilgreina heiminn út frá eigin sjónarhóli. Viðfangsefni eins og líkaminn, heimilið, náttúran og samfélagið voru áleitin og það var brýnt að koma kvenlegum sjónarmiðum á framfæri. Þetta endurspeglast á sýningunni í fjölda mynda af konum og daglegu umhverfi þeirra, heimilinu, baráttunni, bæði stétta- og kvennabaráttu og viðhorfi til náttúrunnar. Sýningin er lágstemmd fyrir augað, sjónrænir miðlar hafa tekið miklum stakkaskiptum síðan þetta var. Hér eru allmörg veggteppi, grafík, málverk, örfáar ljósmyndir og plaköt. Engar kvikmyndir, eru kannski ekki til? Skúlptúrinn er ekki með sem vekur upp spurningar. Hrafnhildur segir í viðtali að höggmyndir ættu skilið sérsýningu, sem er án efa rétt. Sýningin verður þó dálítið flatari fyrir vikið. Rúrí stendur upp úr hvað þetta varðar, tillaga hennar að nýjum þjóðbúningi er klassík að ég tali nú ekki um eyðileggingu gyllta Bensins með öxi. Ljósmyndir af Bens-gjörningnum eru eina verkið sem er utan við salinn og það er miður því það hefði hleypt meira fútti í stemninguna inni í salnum að hafa það inni. Endurgerð á þessum gjörningi er við hæfi á minnst þriggja ára fresti í íslensku samfélagi. Talandi um fútt þá bjóst ég við meiru af slíku en það var kannski bara ekki til staðar. Íslenskar listakonur frömdu ekki gjörninga á borð við verk t.d. Marinu Abramovich sem sat nakin í listasal á Ítalíu árið 1974 með 72 hluti í kringum sig þar á meðal hnífa og byssu og bauð áhorfendum að gera það við líkama hennar sem þeir vildu. Hér er nálgunin af allt öðrum toga. Það sem situr í manni eftir að skoða er staða listarinnar í samfélaginu á þessum tíma. Það var sjálfsagt að vefa skoðun sína í veggteppi og líta á það sem öflugt innlegg í baráttuna. En í dag? Já það er einmitt sú spurning sem vaknar. Um leið og sýningin birtir mikilvægi þess að skoða listasöguna okkar sem fæstir þekkja, vekur hún ekki síst spurningar um stöðu kvenna og listakvenna í samtímanum. Niðurstaða: Sýning sem kveikir margar tímabærar spurningar um stöðu kvenna, kjörinn vettvangur til umræðu. Trú listakvennanna á kraft listarinnar sem öflugt tæki í samfélagsbaráttunni stendur upp úr.
Mest lesið Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Lífið Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ Lífið „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lífið Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Lífið Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lífið Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Lífið Þeir fátæku borga brúsann Gagnrýni Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Lífið samstarf Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Lífið „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ Lífið Fleiri fréttir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira