Lífið

Klovn-myndin sló öll met í Danmörku

Vinsælir Frank Hvam og Casper Christensen eru menn ársins í dönsku skemmtanalífi.
Vinsælir Frank Hvam og Casper Christensen eru menn ársins í dönsku skemmtanalífi.

Klovn: The Movie setti nýtt met í dönskum kvikmyndahúsum. Aldrei hafa fleiri borgað sig inn á danska bíómynd yfir frumsýningarhelgi samkvæmt Jan Lehman hjá Nordisk Films Biografdistribution.

Talið er að 167.091 hafi greitt sig inn á myndina og er Klovn: The Movie þar með komin í hóp með kvikmyndum á borð við Harry Potter og Hringadróttinssögu.

Frank Hvam og Casper Christensen eru því nýjustu gullkálfar Danmerkur en örlögin virtust ekki vera á þeirra bandi; bandbrjálað veður hefur leikið Dani grátt og svo átti danska kvennalandsliðið í handbolta mikilvæga leiki fyrir höndum á EM.

„Þetta er ótrúlega flott,“ segir Casper í samtali við vef danska dagblaðsins Berlingske Tidende. „Það er algjörlega frábært hversu margir miðar hafa selst en ég veit samt ekkert hvað þetta þýðir,“ bætir gamanleikarinn við.

Þegar blaðamaður BT útskýrir fyrir honum að þetta sé glæsilegasta frumsýningarhelgi danskrar kvikmyndar eykst gleðin í rödd Caspers.

„Nú, þá er þetta náttúrlega stórkostlegt og það er alltaf gaman að gera eitthvað sem maður er stoltur af. Það vill einmitt svo skemmtilega til að ég er nýbúinn að opna kampavínsflösku.“

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá verður Klovn: The Movie nýársmyndin hjá Sambíóunum og er unnið að því hörðum höndum að fá þá félaga til að vera viðstadda frumsýninguna. Miðað við dálæti þeirra á landi og þjóð verður að teljast fremur líklegt að þeir láti sjá sig á nýju ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×