Lífið

Stórskotalið reynir við Þór

Hokinn af reynslu Óskar Jónasson segir Ladda vera hokinn af reynslu en hér reynir leikarinn sig við rödd Mjölnis.
Fréttablaðið/Valli
Hokinn af reynslu Óskar Jónasson segir Ladda vera hokinn af reynslu en hér reynir leikarinn sig við rödd Mjölnis. Fréttablaðið/Valli

„Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en raddprufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir, hamarinn víðfrægi.

Þegar Fréttablaðið bar að garði var Þórhallur Sigurðsson, Laddi, að prófa að tala fyrir Mjölni en Laddi er eflaust einhver besta teiknimyndarödd Íslandssögunnar.

„Hann er hokinn af reynslu, hefur einhvern tón sem er bæði sannur og réttur, eins og öll þjóðin þekkir,“ segir Óskar um Ladda án þess þó að vilja láta neitt uppi um möguleika Ladda. Meðal annarra sem hafa reynt sig við hlutverkin tvö eru Sveppi, Atli Rafn og Felix Bergsson sem er einnig nokkuð reyndur í teiknimyndunum, hefur talað fyrir bæði kúrekann Vidda í Leikfangasögu og Manna í Ísaldarmyndunum.

Óskar segir vinnu við teiknimynd allt öðruvísi en það sem hann hefur kynnst.

„Við erum búnir að vera lengi neðanjarðar því svona teiknimynd verður til á jarðfræðilegum tíma og það er svolítið nýtt fyrir mér enda vanur sjónvarpi þar sem allt gerist hratt,“ útskýrir Óskar sem fagnar því að komast upp á yfirborðið og hitta annað fólk.

Óskar reiknar með að raddirnar verði ráðnar á næstu vikum, þeir muni hins vegar ekki ráða í hlutverkin fyrr en þeir eru orðnir fyllilega sáttir. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×