Lífið

Kim vill nýtt hús í Miami

Raunveruleikastjarnan ætlar að flytja til Miami til að geta búið nálægt systrum sínum Kourtney og Khloe.
Raunveruleikastjarnan ætlar að flytja til Miami til að geta búið nálægt systrum sínum Kourtney og Khloe.

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er sögð ætla að flytja sig um set til Miami til að geta búið nálægt systrum sínum Kourtney og Khloe.

„Hún elskar Miami og þetta virðist allt saman ætla að ganga upp. Þegar hún ákveður að gera eitthvað hættir hún ekki fyrr en málið er í höfn," sagði kunningi hennar.

Kardashian, sem er 29 ára, er ein þeirra sem orðuð við portúgalska fótboltakappann Cristiano Ronaldo þó svo að hún hafi ekki viljað staðfesta orðróminn. Engu að síður er Ronaldo tíður gestur í Miami og því gæti flutningur hennar til borgarinnar glætt samband þeirra til muna.

Kardashian hefur áður rætt um að kaupa sér hús í Miami.

„Þótt Beverly Hills verði alltaf mitt heimili þá er Miami uppáhaldsstaðurinn minn. Mitt markmið er að kaupa hús þar og eyða tíma á báðum stöðunum. Vonandi á mitt annað heimili eftir að verða á Miami," sagði hún.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×