Lífið

Uppselt á Airwaves

Sænska söngkonan Robyn stígur á svið á Airwaves-hátíðinni í ár.
Sænska söngkonan Robyn stígur á svið á Airwaves-hátíðinni í ár.

Uppselt er á Iceland Airwaves-hátíðina sem verður haldin um miðjan október.

Hátíðin í ár verður sú stærsta til þessa. Hátt í þrjú hundruð tónleikar verða á opinberri dagskrá hátíðarinnar, auk þess sem tugir viðburða verða haldnir utan dagskrár.

Á meðal flytjenda á Airwaves eru Robyn, Bombay Bicycle Club, Everything Everything, Ham og SH Draumur. Bransafólk frá öllum heimshornum hefur að auki boðað komu sína ásamt öðrum tónleikaþyrstum gestum. Hægt er að skoða dagskrá hátíðarinnar á heimasíðu Iceland Airwaves.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×