Tortryggni Davíðs í garð ráðherra hamlaði upplýsingagjöf 12. apríl 2010 10:40
Af rás atburða árið fyrir fall bankanna er ljóst að ákveðin tortryggni og samstarfserfiðleikar settu mark sitt á samskipti Davíðs Oddssonar, formanns stjórnar Seðlabanka Íslands, og flestra ráðherra Samfylkingarinnar. Þetta segir í rannsóknarskýrslu Alþingis. Ennfremur að jafnframt sé ljóst að fyrra samstarf milli formanns bankastjórnarinnar og forsætisráðherra á pólitískum vettvangi og áralöng vinátta þeirra hafði, eins og sá síðarnefndi lýsti, áhrif á samstarf og skilning manna á þeim upplýsingum sem fóru á milli forystumanna í ríkisstjórn og formanns stjórnar Seðlabanka Íslands. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra áttu fund með bankastjórn Seðlabanka Íslands7. febrúar 2008. Á fundinum dró formaður bankastjórnar Seðlabankans upp mjög dökka mynd af stöðu og framtíðarhorfum íslensku bankanna. Upplýsingarnar bentu til yfirvofandi hættu fyrir íslenskt efnhagslíf. Bankastjórnin átti einnig fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra 1. apríl 2008. Hún upplýsti þar að 193 milljónir punda hefðu runnið út af Icesave reikningum í London helgina áður. Jafnframt kom fram að Landsbankinn gæti þolað slíkt útstreymi í sex daga. Hvorki forsætisráðherra né aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem höfðu þessar upplýsingar brugðust við þeim með virkum og trúverðugum aðgerðum. Í aðdraganda að falli bankanna var því staðan sú að fyrri stjórnmálastörf Davíðs Oddssonar urðu samkvæmt lýsingu ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem tók við völdum í maí 2007 til þess að hafa áhrif á það hvernig ráðherrar brugðust við þeim upplýsingum sem Davíð lét þeim í té í embættisfærslu sinni sem formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Á fundum bankastjórnar Seðlabankans með ráðherrum var ekki hafður sá háttur á að bankinn afhenti ráðherrunum skjal þar sem teknar höfðu verið saman upplýsingar ásamt mati bankans á þeim og settar fram tillögur hans að viðbrögðum þar sem það átti við. Þetta vekur furðu. Á sumum þessara funda voru fluttar mjög alvarlegar fregnir. Embættisfærsla bankastjórnar Seðlabankans var því að þessu leyti ekki jafn vönduð og ætlast hefði mátt til. Gerði þetta ráðherrum vafalítið erfiðara fyrir að meta rétt viðbrögð og þá ekki síst í ljósi þeirra erfiðleika sem voru í samskiptum ráðherra Samfylkingarinnar og formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Á hinn bóginn verður heldur ekki séð að ráðherrar hafi kallað eftir slíkum tillögum og skjölum frá Seðlabankanum eftir að þeim hafði verið gerð munnlega grein fyrir þýðingarmiklum upplýsingum. Var þó brýn ástæða til þess. Þá voru af hálfu ráðherranna almennt ekki skráðar fundargerðir um fundi þeirra með bankastjórn Seðlabanka Íslands þótt ástæða væri til í ljósi þeirra mikilvægu upplýsinga sem þar komu oft fram. Fyrir liggur að í ríkisstjórn Íslands var allt fram að falli bankanna lítið rætt um stöðu bankanna og lausafjárkreppuna sem hófst undir loks sumars 2007. Hvorki verður séð af fundargerðum ríkisstjórnarinnar né frásögnum þeirra sem gáfu skýrslur fyrir rannsóknarnefnd Alþingis að þeir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem fóru með efnahagsmál (forsætisráðherra), bankamál (viðskiptaráðherra) eða fjármál ríkisins (fjármálaráðherra) hafi gefið ríkisstjórninni sérstaka skýrslu um vanda bankanna eða hugsanleg áhrif hans á efnahag og fjármál ríkisins frá því að þrengja tók að bönkunum og þar til bankakerfið riðaði til falls í október 2008. Árið 2008 átti forsætisráðherra allmarga fundi með formanni bankastjórnar Seðlabankans og bankastjórum bankanna. Á tímabilinu febrúar til maí 2008 átti bankastjórn Seðlabankans einnig a.m.k. fimm fundi með forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra. Málefni bankakerfisins heyrðu undir ráðuneyti Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. Hann var ekki boðaður á neinn þessara funda. Þar var þó m.a. rætt um vanda bankanna og lausafjárkreppuna. Að auki var viðskiptaráðherra hvorki gerð grein fyrir því að fundirnir hefðu farið fram né var hann upplýstur um það sem þar fór fram. Ein undantekning er þó frá þessu því greint var frá fundinum 7. febrúar 2008 á þingflokksfundi Samfylkingarinnar 11. Febrúar 2008. Forsætisráðherra bar sem verkstjóra ríkisstjórnarinnar að upplýsa viðskiptaráðherra um framangreinda fundi þannig að hann gæti rækt starfsskyldur sínar.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Sjá meira