Lífið

Rokkað gegn fátækt

Dark Harvest Er ein af þeim hljómsveitum sem ætla að spila á tónleikunum til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands
Dark Harvest Er ein af þeim hljómsveitum sem ætla að spila á tónleikunum til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands

Styrktartónleikar verða haldnir á skemmtistaðnum Sódómu á fimmtudaginn kemur. Allur ágóði tónleikanna rennur til Fjölskylduhjálpar Íslands. Á tónleikunum koma fram sveitirnar Skálmöld, Vicky, Dark Harvest, Mögl og Gone Postal. Einnig verður frumsýnd ný hönnunarlína Thors Hammer en það eru meðal annars armbönd, belti og ullarpeysur svo fátt eitt sé nefnt. DJ. Daði mun svo þeyta skífum eftir tónleikana.

Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína til styrktar málefninu en miðinn kostar 1.500 krónur og húsið verður opnað stundvíslega klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×