Lífið

Styrktartónleikar fyrir Kaffi Flóka

Edgar Smári Atlason.
Edgar Smári Atlason.

„Þetta verður svona manneskjuvænt kaffihús fyrir alla," segir Edgar Smári Atlason, söngvari og einn af aðstandendum Kaffi Flóka, sem er kaffihús/matstofa rekið af og fyrir unga geðfatlaða einstaklinga.

Styrktartónleikar fyrir kaffihúsið verða haldnir á morgun þar sem valinkunnir tónlistarmenn koma fram. Allur ágóðinn mun renna til Kaffi Flóka en það er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en sams konar rekstur fyrir geðfatlaða einstaklinga tíðkast mikið í nágrannalöndunum. Kaffihúsið er á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar.

„Þetta var í raun upphaflega hugmynd fólkins á Flókagötuheimilinu en þau vildu fá að spreyta sig við að vinna í þjónustustörfum. Þar sem það er ekki mikið í boði kom þessi hugmynd upp, að opna kaffihús sem er fyrir alla en er rekið af þeim með okkar aðstoð," segir Edgar og bætir við að það geti verið mjög erfitt fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum að koma inn á kaffihús eða gera hluti sem eru flestum hverdagslegir.

„Hugmyndin um tónleikana kom í sumar þegar við byrjuðum að vinna að opnun kaffihússins en ég þekki það af eigin raun að það kostar ýmislegt að reka kaffihús," segir Edgar Smári sem hefur áður unnið á kaffihúsi föður síns.

„Ég ákvað bara að hringja í alla þá sem ég hef verið að vinna með undanfarið eins og til að mynda Stebba Hilmars, Guðrúnu Gunnars, Ellen Kristjánsdóttur og Pétur Hallgríms, og svo Gospelkórinn. Það voru allir tilbúnir til að leggja hönd á plóg til að styrkja málefnið og krakkana," segir Edgar en hann lofar flottum tónleikum og vonast til að sem flestir sjái sér fært um að mæta. Miðaverð er 2.000 kr. og fást þeir í Fíladelfíu. - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×