Lífið

Skírir barnið eftir vískíi

Sammála um nafn Pink og Carey Hart eiga von á sínu fyrsta barni eftir hálft ár. Ef barnið er drengur vilja þau skíra hann Jameson.nordicphotos/getty
Sammála um nafn Pink og Carey Hart eiga von á sínu fyrsta barni eftir hálft ár. Ef barnið er drengur vilja þau skíra hann Jameson.nordicphotos/getty

Söngkonan Pink og eiginmaður hennar, Carey Hart, eiga von á sínu fyrsta barni. Söngkonan er komin rúma þrjá mánuði á leið og segist þegar vera búin að ákveða nafn á barnið verði það drengur.

„Pabbi minn heitir James og bróðir minn heitir Jason. Ég og Carey erum bæði hrifin af viskíi og þess vegna ákváðum við að ef barnið yrði drengur myndi hann heita Jameson. Mjög auðvelt," sagði söngkonan í viðtali við Access Hollywood.

Hjónin eru þó ekki jafn ákveðin þegar kemur að stúlkunöfnum. „Ég vil nafn sem hefur einhverja merkingu, en Carey finnst sem nafnið hans hafi verið of stelpulegt og vill ekki að barnið heiti skrítnu nafni. Ég verð því að mýkja hann svolítið upp ef ég vil fá frumlegt nafn á barnið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×