Lífið

Reese vill fleiri börn

Reese Witherspoon Ástfangin og opin fyrir frekari barneignum.
Reese Witherspoon Ástfangin og opin fyrir frekari barneignum.

Reese Witherspoon segist vera svo mikil fjölskyldumanneskja að hún vill ólm eignast fleiri börn. Leikkonan góðkunna á tvö börn af fyrra hjónabandi sínu með Ryan Phillippe. Dóttirin Ava er ellefu ára og sonurinn Deacon er orðinn sjö ára en Reese segist hvergi nærri hætt.

„Börnin eru það besta í lífi mínu. Ég vakna ekki til að búa til kvikmyndir, ég vakna til að vera með fjölskyldunni minni," segir hin 34 ára Witherspoon. Hún er sem kunnugt er á föstu með umboðsmanninum Jim Toth.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×