Lífið

Gerir mynd með John Hurt

Á ferð og flugi Karl Óskarsson er nýkominn heim frá London þar sem hann tók upp auglýsingu fyrir Ólympíu-leika fatlaðra sem fram fara í London 2012. Og svo er hann að fara að taka upp stuttmynd með John Hurt.
fréttablaðið/valli
Á ferð og flugi Karl Óskarsson er nýkominn heim frá London þar sem hann tók upp auglýsingu fyrir Ólympíu-leika fatlaðra sem fram fara í London 2012. Og svo er hann að fara að taka upp stuttmynd með John Hurt. fréttablaðið/valli

„Þetta er stuttmynd, tekin upp í Cornwall og það er reiknað með sjö dögum í tökum. Ég hef ekki sinnt stuttmyndaforminu nægjanlega vel en það er góður leikari í aðalhlutverkinu og það skiptir miklu máli,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Karl Óskarsson.

Hann er á leiðinni til Bretlands eftir tvo daga til að gera stuttmynd með enska stórleikaranum John Hurt. Hurt hefur tvívegis verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og hlaut Bafta-verðlaunin fyrir leik sinn í Fílamanninum, kvikmynd sem líður flestum seint úr minni. Þar að auki hefur Hurt leikið í stórmyndum á borð við Alien og Midnight Express frá 1978.

Karl kemur reyndar við sögu í kvikmynd sem sýnd er á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Hún er tékknesk og heitir Þrjár árstíðir í helvíti (3 sezony v pekle) en Karl fékk kvikmyndaverðlaun Tékklands fyrir kvikmyndatöku.

„Ég hafði vitað af leikstjóranum, Tomás Masín, í dágóðan tíma. Svo hringdi framleiðandi myndarinnar og bauð mér verkið. Ég hringdi í umboðsmanninn minn og hann sagði mér að handritið hefði legið inni á borði hjá þremur breskum tökumönnum sem vildu ekki fá það af því að myndin væri á tékknesku. En ég sló bara til,“ segir Karl.

Tékkland er gamalt stórveldi í Evrópu og myndin fjallar um niðurbrot þess, fyrst undir stjórn nasista og svo kommúnista eftir lok seinna stríðs. Karl segist hafa upplifað sérkennilega tilfinningu á meðan á tökum myndarinnar stóð því þær fóru fram á sama tíma og bankakerfið á Íslandi hrundi eins og spilaborg.

„Þetta var mjög svipað, að sjá heilt samfélag hrynja smám saman og molna.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×