Lífið

Illa lyktandi söngkona

subba Britney Spears er að sögn vina ekki aðdáandi baðferða.
nordicphotos/getty
subba Britney Spears er að sögn vina ekki aðdáandi baðferða. nordicphotos/getty

Samkvæmt slúðurritum vestan hafs hefur unnusti söngkonunnar Britney Spears sett henni úrslitakosti, annaðhvort þvær hún sér eða hann mun slíta sambandinu.

Jason Trawick ku vera orðinn þreyttur á vondri lykt af söngkonunni og heimtar að hún þvoi sér oftar.

„Britney er ekki týpan sem notar vel lyktandi rakakrem. Hún þolir ekki að þvo á sér hárið og stundum lyktar hún einfaldlega mjög illa," var haft eftir vini söngkonunnar sem segir hana oft ekki baða sig svo dögum skiptir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×