Lífið

Rokkari og poppkóngur sameinast

Gamall rokkari Nafnarnir Örlygur Smári og Smári Tarfur sameina rokkið og poppið í nýju lagi fyrir hljómsveitina Elektru.
fréttablaðið/stefan
Gamall rokkari Nafnarnir Örlygur Smári og Smári Tarfur sameina rokkið og poppið í nýju lagi fyrir hljómsveitina Elektru. fréttablaðið/stefan

Eurovision-lagahöfundurinn Örlygur Smári fetar heldur ótroðnar slóðir í nýju lagi fyrir stúlknasveitina Elektru.

„Mig langaði að gera svona rokklag með poppuðu tvisti og datt strax Smári Tarfur í hug," segir Örlygur Smári lagahöfundur um samstarf hans og gítarleikarans Smára Tarfs Jósepssonar í nýju lagi fyrir stúlknasveitina Elektru. Kapparnir eru báðir þekktir fyrir að vera vel að sér í tónlist en þó hvor í sinni stefnunni. Smári Tarfur er gítarleikari og þekktur í heimi þungarokksins en Örlygur Smári er hvað frægastur fyrir lög sín fyrir Eurovision og Pál Óskar. Þetta er í fyrsta sinn sem kapparnir leiða saman hesta sína og tókst samstarfið vel að sögn Örlygs Smára.

„Ég hringdi bara í hann og spurði hvort hann vildi gera með mér lag. Hann samþykkti strax og nú er ég að leggja lokahönd á lagið," segir Örlygur Smári en lagið ber nafnið Cobra on heels og mun fara í spilun innan skamms.

„Við hlustuðum á AC/DC saman milli vinnutarna. Ég er sko gamall rokkari svo við áttum nú eitthvað sameiginlegt," segir lagahöfundurinn hress í bragði og ber samstarfinu vel söguna. „Ég hef nú unnið með mörgum við að gera tónlist og stundum heppnast það og stundum ekki. Í þessu tilfelli heppnaðist það vel og við erum góðir saman," segir Örlygur Smári en hann mundi gjarna vilja vinna aftur með Smára Tarfi í náinni framtíð.

Lagið mun eflaust heyrast á fyrirhuguðum tónleikum Elektru á Mallorca þar sem þær koma fram á stærstu lesbíuhátíð í Evrópu, L-Sun.

- áp








Fleiri fréttir

Sjá meira


×