Veigar Páll: Ætla að sýna það að Nancy hafði rangt fyrir sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2010 12:00 Veigar Páll Gunnarsson í landsleik. Mynd/Anton
Veigar Páll Gunnarsson er kominn aftur til Stabæk eftir martröðina með Nancy í franska fótboltanum og um helgina er fyrsta umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Veigar Páll var af því tilefni í viðtali hjá NTB, stærstu fréttastofunni í Noregi. „Ég ætla að sýna það og sanna að Nancy hafði rangt fyrir sér," sagði Veigar Páll í viðtalinu. Hann fékk fá tækifæri hjá Nancy og skoraði ekki eitt einasta mark. Veigar Páll varð hinsvegar meistari með Stabæk þegar hann lék síðast með liðinu og fór þá á kostum með þeim Daniel Nannskog og Alanzinho. „Við áttum örugglega þátt í meira en 50 mörkum saman þetta tímabil. Ég ætla ekki að setja þá pressu á okkur fyrir mót en stuðningsmenn fá vonandi eitthvað af mörkum frá okkur," sagði Veigar Páll en hann sjálfur hefur gert 47 mörk í 85 leikjum í norsku úrvalsdeildinni. „Mótherjarnir þekkja okkur betur núna og þetta hefur ekki gengið alveg nógu vel á undirbúningstímabilinu. Við komust vonandi aftur í gang og þetta verður vonandi skemmtilegt tímabil," sagði Veigar sem skoraði tvö mörk í síðasta æfingaleiknum fyrir mótið. „Ég hafði ekkert sjálfstraust þegar ég var í Frakklandi en ég ætla að sýna það að ég get þetta ennþá og vonandi hefur fólk ekki misst trúna á mig. Ég hef lagt mikið á mig til að koma sterkur til baka. Ég elska Stabæk og það hvernig við spilum," segir Veigar Páll en hann segist vera ánægður ef að Stabæk nær fjórða sætinu á þessu tímabili.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð Körfubolti „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Körfubolti Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Enski boltinn „Menn vissu bara upp á sig sökina“ Körfubolti Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Enski boltinn Dagskráin í dag: PGA-meistaramótið fer af stað Sport Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Íslenski boltinn Dramatísk endurkoma Real hélt veikum vonum á lífi Fótbolti Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti Fleiri fréttir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Dramatísk endurkoma Real hélt veikum vonum á lífi Bologna bikarmeistari eftir sigur á AC Milan Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín Hjörtur skoraði þegar Volos tryggði sætið Hákon Arnar kveður kollega sinn í framlínunni sem getur valið úr tilboðum Sampdoria fallið í C-deildina í fyrsta sinn Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Sonur Ronaldo spilaði fyrsta landsleikinn fyrir Portúgal Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Logi á leið í burtu en ekki til Freys Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Sonur Ancelottis orðaður við Rangers Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Sjá meira
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti