Lífið

Ekki meiri Edward

Robert Pattinson.
Robert Pattinson.

Leikarinn Robert Pattinson, sem þekktastur er fyrir að leika vampíruna Edward Cullen, hefur sýnt áhuga á að leika í væntanlegri kvikmynd sem gerð verður eftir metsölubókinni Kill Your Friends. Persónan sem Pattinson hyggst leika er ekki ósvipuð þeirri sem Christian Bale lék í kvikmyndinni American Pshyco.

„Robert er mikill aðdáandi bókarinnar og vill endilega taka þátt í verkefninu. Þetta er mjög myrk persóna sem hann vill leika og mun eflaust ekki höfða til ungra aðdáenda hans," var haft eftir heimildarmanni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×