Lífið

Tveir krummar á Brimi

Karl Sigurðsson situr í borgarstjórn og er meðlimur Baggalúts og hefur augljóslega sagt eitthvað fyndið því unnusta hans, Tobba Marinós, skellihlær.Myndir/Hanna Lísa
Karl Sigurðsson situr í borgarstjórn og er meðlimur Baggalúts og hefur augljóslega sagt eitthvað fyndið því unnusta hans, Tobba Marinós, skellihlær.Myndir/Hanna Lísa

Kvikmyndin Brim eftir Árna Ólaf Ásgeirsson hefur fengið afbragðs góða dóma gagnrýnenda og fékk meðal annars fjórar stjörnur hjá Fréttablaðinu og fullt hús í DV. Enda var hvergi að finna auðan blett í lokapartýi RIFF þar sem frumsýningunni og lokum kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík var fagnað.

Kvikmyndin Brim hefur verið ansi lengi í vinnslu en næstum tvö og hálft ár eru liðin frá því að tökum lauk. Það virtist hins vegar vera mál manna að sú bið hefði svo sannarlega verið þess virði. Athygli vakti að tveir Krummar létu ljós sitt skína, annars vegar Hrafn Gunnlaugsson og hins vegar Krummi, oftast kenndur við Mínus.

Myndin er byggð á samnefndu verki eftir Jón Atla Jónasson sem var sett upp af Vesturporti. Og virðist kvikmyndin ekki gefa leikverkinu neitt eftir enda endurtekur leikhópurinn hlutverkin sín á hvíta tjaldinu. Litlu mátti muna að aðeins einn leikari yrði viðstaddur sjálfa frumsýninguna, Ólafur Darri, sem síðan segir ekki orð í myndinni. Gísli Örn Garðarsson og Víkingur Kristjánsson komu því frumsýningunni til bjargar, flugu frá London til að vera viðstaddir.

Aðrir leikarar myndarinnar, sem voru uppteknir á fjölum Þjóðleikhússins í Íslandsklukkunni, mættu síðan kampakátir í partíið eftir á.

freyrgigja@frettabladid.is

Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður mætti með móður sína, Herdísi Þorvaldsdóttur, og frænda í frumsýningar­teitið.
Bræðurnir Haraldur og Stefán Jónssynir voru hressir að vanda. Óttarr Proppé var það líka en hann stendur fyrir aftan þá.


Ingvar E. Sigurðsson mætti í partíið eftir að hafa leikið Jón Hreggviðsson í Þjóðleikhúsinu og spjallaði við Óskar Jónasson leikstjóra.
Leikkonurnar Margrét Vilhjálmsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir voru eiturhressar í partíinu.
Það fyrirfinnst varla svalara tvíeyki en Krummi úr Mínus og Jón Ólafsson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×