Lífið

Íslenskir leikarar í Hollywood

Anita Briem var þrusuflott í hasarnum í miðju jarðar.
Anita Briem var þrusuflott í hasarnum í miðju jarðar.

Þótt tæplega sjö þúsund kílómetrar séu á milli Reykjavíkur og Los Angeles er ekki óalgengt að íslenskir leikarar og listamenn ferðist þá vegalengd til að leika í Hollywood-kvikmyndum.

Nýjasta dæmið verður frumsýnt núna um helgina þegar kvikmyndin The Spy Next Door verður tekin til sýningar en í henni leikur Magnús Scheving aðalþrjótinn sem reynir að gera Jackie Chan lífið leitt. Flestir Íslendingar þekkja til afreka Anitu Briem sem lék meðal annars aðalhlutverkið í Journey 3-D á móti stórstirninu Brendan Fraser.

Ekki má heldur gleyma hlutverki Ingvars E. Sigurðssonar í K-19 þar sem íslenski leikarinn fór á kostum í kringum Harrison Ford og Liam Neeson. Hann var síðar prófaður fyrir hlutverk munksins Silas í The Da Vinci Code. Flestum ætti síðan að vera kunnugt um hvað Gísli Örn Garðarsson er að gera í Prince of Persia.

Ingvar E. landaði næstum því illa munkinum Silas í The Da Vinci Code.

Samkvæmt lauslegri athugun Fréttablaðsins er Pétur Rögnvaldsson, sem síðar kallaði sig Peter Ronson, hins vegar fyrsta íslenska Hollywood-stjarnan. Pétur lék leiðsögumanninn Hans Belker í Journey to the Center of Earth sem gerð var árið 1959 með þeim Pat Boone og stórleikaranum James Mason í aðalhlutverkum. Mason hafði nýlokið við að leika í North By Northwest eftir Alfred Hitchcock og vakti nærvera Péturs mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum.

Gunnar Hansen skaut íslensku þjóðinni aftur upp á stjörnuhimininn þegar hann slátraði bandarískum ungmennum í The Texas Chain Saw Massacre árið 1974. Í gagnrýni um myndina í Morgunblaðinu kom í ljós að Íslendinga þyrsti í að sjá fleiri landa sína slá í gegn í Hollywood en kannski ekki á þessum vettvangi:

„Og þar sem Íslendingar eru svo ári sjaldséðir á hvíta tjaldinu þá hefði maður kannski óskað að sjá Gunnar í ögn geðslegra hlutverki."

Anna Björns, sem lék hina kjaftforu Heklu í Með allt á hreinu, var fyrst íslenskra kvenna til ná einhverjum frama í kvikmyndaborginni. Anna lék fyrst og fremst í bandarískum sjónvarpsþáttum, þar á meðal Remington Steel með Pierce Brosnan í aðalhlutverki. En það var kvikmyndin Get Crazy frá árinu 1983 sem vakti hvað mestu athyglina hér á landi en þá lék hún á móti Malcolm McDowell og Lou Reed.

María Ellingsen fetaði síðan í fótspor Önnu með leik sínum í sápuóperunni Santa Barbara. Stjarna Maríu reis þó hæst þegar hún stjórnaði íslensku tuddunum í Mighty Ducks á móti Emilio Estevez. - fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×