Lífið

Jenny komin með nýjan

Jenny McCarthy Komin aftur á fast eftir skilnað við Jim Carrey.
Jenny McCarthy Komin aftur á fast eftir skilnað við Jim Carrey.

Kynbomban Jenny McCarthy, sem nýlega sleit sambandi sínu við leikarann Jim Carrey, hefur nú fundið sér nýjan leikfélaga einungis fjórum mánuðum eftir að hún hvarf úr lífi Carrey.

Bomban sást með óþekktum manni í Los Angeles í maí og hefur nú staðfest að hún hafi verið að hitta Jason Toohey í um tvo mánuði.

Síðastliðna helgi sást til parsins í samkvæmi í Las Vegas og virtust þau ekkert reyna að fela tilfinningar sínar hvort til annars. Þegar hún var beðin um að útskýra hvað væri í gangi á mynd sem náðist af parinu láta vel að hvort öðru sagði hún „þessi gaur er heitur!" og bætti síðan við „Ég er að hitta hann núna og er mjög hamingjusöm."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×