Lífið

Jakob Frímann nær loks fram hefndum

Þungar spurningar Jakob Frímann er ekki búinn að gleyma þeirri opinberu niðurlæginu þegar Stuðmenn voru rassskelltir af Í svörtum fötum í fyrsta þætti Popppunkts fyrir átta árum. Hann hyggst láta gáfumennin svitna á Bar 46 um helgina.
Þungar spurningar Jakob Frímann er ekki búinn að gleyma þeirri opinberu niðurlæginu þegar Stuðmenn voru rassskelltir af Í svörtum fötum í fyrsta þætti Popppunkts fyrir átta árum. Hann hyggst láta gáfumennin svitna á Bar 46 um helgina.

Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon verður spyrill í spurningakeppninni Drekktu betur á Bar 46 við Hverfisgötu á föstudaginn en um helgina verður blásið til sérstakrar Lista- og ölhátíðar á staðnum. Þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, svo sem tónleika, frumsýningu heimildarmyndar um efnahagshrunið eftir Þorfinn Guðnason og nýtt leikrit eftir leikhópinn Peðið. Þá munu blaðamaður og Breiðavíkurdrengur bjóða gestum upp á kreppusúpu.

En vafalítið verður mesta spennan í kringum spurningakeppni Jakobs sem hyggst með henni kveða niður átta ára gamlan draug. „Þetta gæti verið leið mín til að ná jafnvægi og einhverri sætri hefnd á þessari opinberu niðurlægingu fyrir átta árum," segir Jakob í samtali við Fréttablaðið, augljóslega ekki búinn að gleyma óförunum gegn Jónsa og félögum Í svörtum fötum í Popppunkti.

„Þeir einir sem hafa þurft að lúta í gras geta risið upp aftur og horfst í augu við umheiminn með þeirri auðmýkt og mennsku sem er eitt af okkar meginverkefnum í lífinu."

Jakob er þegar farinn að undirbúa sig en vildi ekki gefa of mikið upp um spurningarnar.

„Það verður djúpt kafað og hátt reitt til höggs þannig að þeir sem eru milli himinskauta og iðra djúpanna munu ramba á rétt svör," segir Jakob og lofar því að sumir muni sitja eftir með stórt spurningarmerki á enninu. „Það er hreinlega spurning hvort nokkur treysti sér, hvort einhver mæti hreinlega." - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×