Lífið

Youtube-stríð

vinsæll Justin Bieber er gríðarlega vinsæll á Youtube.
vinsæll Justin Bieber er gríðarlega vinsæll á Youtube.

Stórstjörnurnar ungu Lady Gaga og Justin Bieber stefna bæði að sama takmarki þessa dagana: Að komast upp í milljarðs áhorf á myndbandasíðunni Youtube.

Búist er við að Gaga verði á undan snáðanum Bieber og nái takmarkinu 20. október. Hún var með um 1,8 milljón áhorf á dag í september. Bieber nálgast hins vegar Gaga á ógnarhraða, en hann er með um 3,7 milljón áhorf á dag. Búist er við að hann verði undir í keppninni og nái milljarðinum í byrjun nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×