Lífið

Lætur eiginkonuna um jólainnkaupin

Með valkvíða Ben Affleck lætur eiginkonu sína sjá um öll jólainnkaupin og skreyta heimilið fyrir jólin.
Með valkvíða Ben Affleck lætur eiginkonu sína sjá um öll jólainnkaupin og skreyta heimilið fyrir jólin.

Leikarinn Ben Affleck var gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres fyrir stuttu og ræddi meðal annars jólainnkaupin, sem hann segir eiginkonu sína sjá alfarið um.

„Ég er alls ekki stoltur af þessu. Þetta er svolítið í anda sjötta áratugarins en konan mín er bara mun hæfari í þessu en ég. Þess vegna sér hún um mesta vinnuna og ég stend á hliðarlínunni og hvet hana áfram. Ég er mjög hvetjandi," sagði leikarinn, sem er kvæntur leikkonunni Jennifer Garner. Hann segir að hún sjái um að kaupa allar jólagjafir og skreyta heimilið fyrir hátíðina.

„Það tekur mig samt jafn langan tíma að kaupa jólagjöfina hennar og það tekur hana að kaupa þessar tuttugu gjafir sem við gefum ár hvert. Ég eyði miklum tíma í að velta þessu fyrir mér fram og til baka og er alltaf jafn taugaóstyrkur yfir að henni líki svo ekki gjöfin."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×