Lífið

Ný listamessa í miðborginni í júlí

Kristín Dagmar tekur á móti listafólki frá tólf galleríum í júlí.
Kristín Dagmar tekur á móti listafólki frá tólf galleríum í júlí. Fréttablaðið/Stefán

„Þetta er verkefni sem fyrst var haldið í Póllandi árið 2006. Þá var galleríum víða um heim boðið að koma og taka þátt í hátíðinni sem fram fór í yfirgefninni villu í borginni Varsjá. Í ár var ákveðið að verkefnið færi fram hér á landi og munu alls tólf gallerí taka þátt auk Kling og Bang og i8 gallerí sem eru starfandi hér í Reykjavík," segir Kristín Dagmar Jóhannesdóttir verkefnastjóri.

Villa Reykjavík fer fram í Reykjavík dagana 9. júlí til 31. júlí. Þar munu listagallerí víðs vegar að taka þátt og mynda hálfgert listaþorp í borginni miðri.

Að sögn Kristínar Dagmarar eru þau gallerí sem boðað hafa komu sína hingað til lands í sumar mjög skapandi og spennandi og munu þau standa fyrir ýmsum skemmtilegum listviðburðum ásamt sínum listamönnum.

„Hver og einn byrjar á því að skipuleggja sitt verkefni í sínu heimalandi, svo koma þau hingað í sumar og setja upp listsýningar auk annarra viðburða líkt og tónleika, gjörninga og kvikmynda­sýningar. Íslenska umgjörðin verður svo alfarið í höndum Gallerí Kling og Bang og munu þeir sjá um að setja upp sýningar íslensku listamannanna. Hugmyndin er að hafa afmarkað svæði hér í borginni þar sem hvert gallerí fær svolítið rými fyrir sig. Við erum að skoða auð húsnæði víða um bæinn en nákvæm staðsetning og heildardagsskrá verður tilkynnt síðar." Kristín Dagmar segir verkefnið geta haft góð áhrif á íslenskt listalíf auk þess sem það eflir tengsl á milli íslenskra og erlendra listamanna.

„Það er frábært að fá þessi gallerí hingað, bæði fyrir borgarbúa og svo auðvitað íslenskt listalíf. Þetta er kjörið tækifæri fyrir listafólk til að sýna sig og sjá aðra," segir Kristín Dagmar að lokum. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu hátíðarinnar villareykjavik.com. - sm










Fleiri fréttir

Sjá meira


×