Lífið

Ásgrímsmyndir voru fyrir American Express

Dularfullar myndir Jóhann Páll Valdimarsson og Jón Rósant Þórarinsson með eftirprentanirnar sem fundust á lager Forlagsins. Fréttablaðið/Anton
Dularfullar myndir Jóhann Páll Valdimarsson og Jón Rósant Þórarinsson með eftirprentanirnar sem fundust á lager Forlagsins. Fréttablaðið/Anton

„Það hefur fullt af fólki sett sig í samband við okkur og ég held að sagan á bak við myndirnar sé orðin ljós,“ segir Kristrún Heiða Hauksdóttir, kynningarstýra Forlagsins.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær fundust eftirprentanir af vatnslitaverkum Ásgríms Jónssonar á lager Forlagsins fyrir skömmu. Þær voru settar í sölu í gær og seldust eins og heitar lummur. Sagan á bak við eftirprentunina var nokkuð á reiki en einhverjir hölluðust að því að þetta væri runnið undan rifjum Ragnars í Smára á blómaskeiði Helgafells-útgáfunnar á meðan aðrir giskuðu á að þetta kynni að hafa verið gert fyrir heimssýninguna í Montreal 1967.

„Þetta var gert að undirlagi Iceland Review og American Express og myndirnar voru notaðar til að kynna Ísland á áttunda áratugnum,“ segir Kristrún en Fréttablaðið ræddi í gær við Heimi Hannesson hæstaréttarlögmann sem var ritstjóri Iceland Review á þeim tíma ásamt Haraldi J. Hamar.

Hann staðfesti þessa sögu.

Eftirprentunin var gerð með góðfúslegu leyfi Ásgrímssafnsins, myndirnar voru teknar hér en prentaðar í fínni prentsmiðju í Chicago. Heimir Hannesson segist enn eiga filmurnar en kortafyrirtækið American Express sendi meðal annars umræddar eftirprentanir til allra korthafa í Ameríku og Kanada. Þá fengu ráðherrar í ríkisstjórn Íslands einnig að nota myndirnar til að gefa á ferðum sínum til útlanda, Ásgrímur var því hálfgerð Björk eða Sigur Rós þess tíma. „Og þetta skýrir kannski hvers vegna listfræðingar voru svona grunlausir um þessar myndir, það voru athafnamenn sem létu gera myndirnar og þær notaðar sem kynningarefni.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×