Lífið

Britney er hamingjusöm

Ánægð Britney Spears er ánægð með kærastanum. nordicphotos/getty
Ánægð Britney Spears er ánægð með kærastanum. nordicphotos/getty

Britney Spears og kærasti hennar, Jason Trawick, segja samband sitt vera gott og ástríkt.

Fyrrum eiginmaður Britney, Kevin Federline, sagði í viðtali við Star Magazine að Britney hafi treyst honum fyrir því að Trawick hafi eitt sinn slegið svo fast til hennar að hún hlaut góðurauga. Talsmaður Britney vísar sögusögnunum til föðurhúsanna.

„Jason er alls ekki ofbeldisfullur. Britney hefur átt erfitt í fortíðinni og tekið bræðisköst en Jason hefur ávallt sýnt stillingu og verið til staðar fyrir hana. Í sannleika sagt er samband þeirra mjög gott og þau eru afskaplega hamingjusöm saman," var haft eftir innanbúðarmanni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×