Mourinho mun berjast gegn banninnu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. maí 2011 07:00 Nordic Photos / AFP
Aitor Karanka, aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Real Madrid, segir að sá síðarnefndi sé allt annað en sáttur við fimm leikja bannið sem hann fékk hjá Knattspyrnusambandi Evrópu í dag. Mourinho var rekinn af velli þegar að Real Madrid mætti Barcelona í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í lok apríl. Hann fékk bannið fyrir hegðun sína bæði á meðan leiknum stóð og eftir hann. Hann er þegar búinn að taka út einn leik í banni en Mourinho fékk ekki að vera á hliðarlínunni er Real Madrid mætti Barcelona í síðari viðureigninni. Barcelona komst áfram eftir samanlagðan 3-1 sigur. Real Madrid hefur þegar tilkynnt að félagið muni áfrýja úrskurðinum. „Mourinho ætlar að verja sig fram í það síðasta," sagði Karanka við spænska fjölmiðla. „UEFA hefur ekki enn tjáð sig um ástæður bannsins og mun Mourinho ekki tjá sig sjálfur á blaðamannafundum fyrr en það verður gert." „Mourinho veit að hann nýtur fulls stuðnings allra hjá félaginu sem og stuðningsmanna þess." Skemmst er að minnast þegar að Mourinho mætti á blaðamannafund en lét aðstoðarþjálfara sinn, Karanka, tala fyrir sig. Fjöldi spænskra blaðamanna gengu þá út af fundinum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Everton - Arsenal | Skytturnar vilja skjóta sér aftur upp á topp Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR Sjá meira